Fanney keepin´t cool

fimmtudagur, júlí 11, 2002

Keila er kúl!!!!! Fór í keilu í gær, og það var einhver diskókeila í gangi, heví kúl. Skil samt aldrei fólk sem fer í keilu og er að taka leikinn massa alvarlega. þúst ég hélt alltaf að keila væri djóksport, en neinei þarna er fólk sem á sína eigin skó, hanska og kúlupússningarklút. Þetta sama fólk verður alveg svaka pissed ef að maður er eitthvað að hlæja og gera grín á meðan maður er að keila. Ég held því fram að þeir sem eru góðir í keilu sé bara heppnir, það voru gellur í keilu í gær, allar með gervineglur og gátu varla haldið á kúlunni. Þær hlupu oft niður hálfa brautina og hentu kúlunni eins og þær væru í boggia, en samt voru þær að slá hvert metið á fætur öðru. Þær hefðu ekkert verið betrið þótt þær hefðu verið með hanska og eigin skó.