Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, júlí 31, 2002

Vá ég gleymi alltaf að skrifa.....heilinn orðinn að baun. Ég er greinilega farin að stunda bikkið of mikið. Ég meina flestir lyftingagaurar eru með greindarvísitölu á við herbergishita........svo er allaveganna sagt.
það er ógisslega fyndið að fylgjast með fólki í líkamsræktarstöð, æ bara skoða fötin sem allir eru í og þannig. Ég get alveg gleymt mér í einhverju skíðatæki í klukkutíma og horft á fólk. Sá eina konu í dag og óóómææægod, fötin sem hún var í voru fráábær. Hún hefur ákveðið að snúa sér aftur að líkamanum eftir 20 ára hvíld og bara dustað fram gamla gallann.
Hún var í fölbleikum leggings buxum og bleikum og hvítum og ljósgulum, rósóttum sundbol yfir.......og that´s it. Reyndar var hún með svona bleikt og hvítt fléttað svitaband sem setti alveg punktinn yfir i-ið.
Hún var æði, alveg klippt útúr jane fonda myndbandi, ég ætla að vera svona þegar ég verð fimmtug........