Fanney keepin´t cool

mánudagur, júlí 28, 2003

Einn einn mánudagurinn genginn í garð eftir fína helgi! Hvorki meira né minna en tvö afmæli um helgina. Á föstudaginn átti hún Berglind afmæli og varð stúlkan 25ára gömul. Frábært partý í alla staði og eiga þau hjón skilið lof fyrir veitingar og drykki. Var nú samt bara róleg og var sofnuð um 1:00. Á laugardaginn var svo tekið á því, þá varð hún Sæunn 25 ára...sem sagt 50 ára afmæli um helgina. Byrjað var í grilli og svo var bara drukkið stíft þar til lifrin sagði stopp. Kíkti á Hverfis, Celtic og 22...endaði í pizzu hjá Kötlu, sem ég reyndar sá ekki fyrr en morguninn eftir....sofnaði sem sagt í sófanum áður en flatbakan stimplaði sig inn. Sunnudagurinn fór svo bara í almennt heilsuleysi og vidjógláp....
Ég óska landsmönnum nær og fjær gleðilegs mánudags og megi fólk eiga góða viku :)