Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, júlí 16, 2003

Ok, ég verð aðeins að tjá mig um Boston Public...Ég og Katla horfðum nebblega á hann í gær og vorum ekki alveg nógu sáttar. Sko mér fannst þessi þáttur alltaf alveg bara fínn, en honum hefur hrakað allverulega. Það er búið að taka fyrir öll þau vandamál sem geta komið upp í amerísku skólasamfélagi og nú er bara ekkert að gerast lengur....aðalmálið í þættinum í gær var einhver gella í söngleik sem söng ekki nógu vel á fyrstu æfingunni og tók sig svo saman í andlitinu og söng ógisssslega vel í lokin, en ákvað þá að hætta!!!!!!!!!! Mál númer 2 var að Scott Guber fannst Steven Harper fara á bak við sig.....þátturinn endaði á því sko að Mr. Guber horfði reiðilega á Mr. Harper...úúúú!!!!