Fanney keepin´t cool

laugardagur, september 27, 2003

Ahhh góðan daginn, mikið er nú gott að vera ekki þunnur á laugardegi!! Þetta hefur ekki gerst í manna minnum. Konan sem á ekkert líf fór bara snemma í háttinn og er úthvíld og hress í dag. Átti að sækja pabba á djammið í nótt, en vaknaði ekki við símann og því þurfti sá gamli að taka leigara....ætli ég skuldi honum 2000kall?
Ógila gott veður og ætla ég eitthvað út að leika í dag....svo eru ágætis líkur á því að maður máli tánið rautt í kvöld.
Góða helgi....