Fanney keepin´t cool

mánudagur, mars 15, 2004

Jibbýkóla...brottför eftir 20 tíma og tíu mínótur! Reyndar bíður okkar soldið langt ferðalag til að komast á leiðarenda, en það er bara gaman að ferðast í góðra vina hópi ;) Soldill spenningur að komast í stelpuna...jíha!

Kláraði loksins frumuerfðafræðitörnina á laugardaginn og því var að sjálfsögðu fagnað með smá ölþambi. Ásdís, Valli og Addi komu í íbúðina mína og ræddum við um heima og geima, á meðan keppni í glasalyftingum fór fram!! Smelltum okkur á hverfis og vorum þar þangað til við fengum nóg og fórum heim. Fannsan og Dísan enduðu í Pétri og fékk D þann vafasama heiður að vígja klósettið gubbulega séð...vel af sér vikið Ásdís mín...húrrrahhh!! Vígðum líka nýja Nasarúmið og var það almannarómur að rúmið sé bara vel hæft í allskyns næturkúnstir, þá sérstaklega til fullnægjandi svefns. Pétur stóðst vel undir væntingum og held ég að hann sé orð götunnar í dag...Pétur you´re the MEN!!!!