Fanney keepin´t cool

mánudagur, júní 07, 2004

Það er góð og gild ástæða fyrir bloggleysi mínu, en tölvan mín er búin að vera eitthvað biluð, gelgjuskeiðið eða eitthvað þaðan af verra.
Mjög góð helgi nýafstaðin, 3 drottningar, ég, Ásdís og Erla héldum í bústað á laugardaginn og áttum alveg frábæra stund. Mikið étið, drukkið, hlegið og spjallað. Létum eins og fífl, svona eins og okkur einum er lagið...fórum á spíttbát og alles.

Gaman að því hvað karlmenn eru merkileg dýr, þeir eru alveg 18 þangað til þeir verða 60 ára..ég hélt fyrir þessa ferð að þeir yrðu að mönnum 40 ára, en nei. Þeir sem voru þarna með okkur í bústað voru komnir yfir 50 ára, en voru alveg 18 ára. Þeir áttu allir spíttbát og einn átti þyrlu, svo voru þeir í James Bond leik á vatninu...þúst þyrlan að elta bátinn og þess háttar, svo drukku þeir og sögðu brandara svona eins og 18ára guttum einum er lagið...snilllllllingar.