Föstudagur kominn í hús, sem vekur alltaf mikla kátínu hjá Fönnsunni. Lenti í rökræðum við sjálfa mig um daginn um hver væri uppáhalds vikudagurinn minn. Gat ekki alveg ákveðið milli föstudags og laugardags. Held að niðurstaðan sé sú uppáhaldsdagurinn minn sé föstudagur frá 16:00 þangað til ég sofna á laugardegi. Sem sagt flaugardagur er uppáhaldið mitt.
Fannsan á það til að vera ákaflega málhölt kona, sagði t.d um daginn djöfull langar mig að bá fjór í kroppinn...þetta kom ekkert að sök þar sem viðmælandinn skildi mig. Öllu verra var þegar ég var í leifstöð og fór í gegnum passaskoðunina og bað um pimpil í sassann...tollvörðurinn gaf mér undarlegt lúkk og rétti mér óstimplaðan passann tilbaka.