Gott djamm í gær. Hitti gellurnar og við drukkum öl og átum kjét. ógisslega gaman alltaf þegar að við hittumst og slettum úr klaufunum. Ég fór í pæjuskó í fyrsta skipti á ævinni. Æ svona stígvél með mjórri tá og mjóum háum hæl. (Ég fýla mig best á flatbotna skóm). Þetta var ekkert mál í partýinu, þá voru skórnir heldur ekkert á löppunum á mér, þeir biðu í ofvæni í forstofunni eftir að fá að pína mig aðeins. Eeen þetta varð doldið erfitt þegar ég þurfti eitthvað að fara að labba um bæinn og standa við bar og svona. Reyndi að dansa, var eins og fífl stóð kjurr og dillaði öxlunum og rassinum. Smart dans. Var alveg guðs lifandi fegin þegar Gerður bauðst til að skutla mér heim..........
Djöfulli var nú gott að komast úr stígvélunum. Hlakka samt alveg til að fara í þau aftur, ég var svo klikkuð pæja í þeim....:) hehe
Ég er alveg að huxa um að fara að lúlla....soldið sikk, klukkan er jú aðeins 10 á laugardagskvöldi. Ég er orðin svo gömul, sumir segja að stefni beinustu leið á Grund. Æj ég svaf bara í 4 tíma í nótt. Voffi vakti mig klukkan 9 í morgun, alveg að skíta á sig. Það vekur mann alveg að fara út í labbitúr kl 9.
Góða nótt lömbin mín!!