Fanney keepin´t cool

þriðjudagur, október 01, 2002

Nenni ekki að setja inn eitthvað takkí próf í dag.
Segi ykkur bara í staðinn skemmtilega sögu eða eitthvað. Er frekar pirruð út í sjálfa mig...ætlaði að læra í ALLAN dag en er ekki ennþá byrjuð og hvað er klukkan.....20 mín í 3. Var ýkt dugleg í morgun, vaknaði kl 9, fór í gymmið og síðan er ég bara búin að vera að slóra. Ætlaði að fara að gera efnafræði dæmi, búin að taka þau uppúr töskunni og hér liggja þau fyrir framan mig og gera ekkert annað en að gefa mér nagandi samviskubit. Svo þarf ég að fara í tíma á eftir og þá get nú ekki reiknað mikið. Er reyndar að fara í skemmtilegan tíma....tilraunadýr og vísindarannsóknir. Fékk að sprauta mýs í síðustu viku, frekar spennandi.
Jæja verð að drullast úr tölvunni og fara að læra.........arrrrggggghhhh.