Fanney keepin´t cool

mánudagur, nóvember 25, 2002

Jesús minn hvað það gengur illa að koma sér í prófagírinn. Það er sama hvað ég reyni, fer í ljóta joggingallann, kaupi fullt af magic og spreyja vondri lykt í herbergið ég bara kemst ekki í prófafíling. Þetta hlýtur nú samt að koma með tímanum, svona þegar pressan verður meiri. Fyrsta prófið er erfðafræði, og gvööð hvað þungu fargi verður létt af manni eftir það. Svo koma einhver miður skemmtileg próf í kjölfarið......arggggg nenni ekki í próf. Bjánaleg tímasetning á prófum, jólin skemma alltaf jólaprófin. Maður er svo spenntur fyrir jólin, baka og þannig að maður gleymir að læra. Svo hin prófin, þá er sumarið að koma og maður gleymir að læra því maður planar svo mikið hvað maður ætlar að gera skemmtilegt þegar helv#$#!$, djö"#"$ próin eru búin.....Hmmm hata próf.
Jæja ég er búin að vera á leiðinni að læra síðan kl 3 og hef ekkert gert enn....djöfull hlýtur litli skrattinn á öxlinni að vera glaður með sína stúlku í dag.....hún er búin að gera allt annað en að læra...
well ekki meira lærubögg í bili.
overandout