Búin að ná mér niður eftir vinnupirring í gær....klúðraði þessu massíft og þarf að gera þetta aftur. En fyrst ég var svona lengi í gær er planið að fara snemma heim í dag...jafnvel bara bráðum. Planið er að bruna á Seyðisfjörð í einum rikk á eftir....bannað að stoppa, bannað að pissa, bannað að kaupa pullur!!! Svo er bara málið að vera í gaggósleik á Seyðó alla helgina og ná sér í 16 ára kærasta á balli með í svörtum fötum. Gott plan?!?!
fimmtudagur, júlí 17, 2003
<< Home
