Fanney keepin´t cool

mánudagur, september 29, 2003

Jeiiij komin með nýjan teljara....hehe ekki það að ég hafi eitthvað saknað gamla, en þetta er meira kúl svona. Maður verður að tolla í bloggtískunni. Well enn einn mánudagurinn, ég þoli gjörsamlega ekki mánudaga. Það má alveg sleppa þeim, bara hoppa beint inní þriðjudaga....!!
Fannsan skellti sér á djammið á laugardaginn með henni Ásdísi. Bauð konan mér með sér í teiti, sem var hin besta! Dönsuðum af okkur lappirnar á 22 fram undir morgun, og enduðum í pullu. Þynnkan lét sig ekki vanta á sunnudaginn, en ég var þó ekki eins veik og sumir sem höfðu ekki einu sinni list á Mcdó í þynnkunni.
Jæja önnur fyrirlestrartörn að hefjast.....frumulíffræði berkla á hug minn allan næstu daga.
Adjööö