Fanney keepin´t cool

laugardagur, nóvember 15, 2003

Jæja! Þá er Fannsan orðin íbúðareigandi!!! Ef ég er ekki vænleg bachelorette þá veit ég ekki hvað. Já skjótt skipast veður í lofti, bara á einum degi, þá á maður skyndilega húsnæði....jööööminn hvað þetta er vírd. Jæja en fór í Idol boð til Beggu og Hlyns og skoðaði nýju íbúðina þeirra í leiðinni. Fínasta íbúð alveg hreint. Fór samt bara á kristilegum tíma heim, þar sem ég var bílandi. En stefnan er tekin á eitthvað svaðalegt í kvöld, er þaggi stelpur?? Jæja ætla að henda í einn fyrirlestur enn...úffff. Núna um æxlisbælandi gen, krabbameinsmyndun, sameinda-faraldsfræði og áhættumat.....skemmtó!!
Góða helgi gott fólk:)