Alveg fór ég á hreint magnað ball í gær! Við stöllurnar, ég, Beta og Þurý skelltum okkur á players og hlýddum á ´í svörtum fötum´. Mér finnst Jónsi alveg bestasta poppstjarnan, kyssti allar kellingarnar sem stóðu fremst og máttu ekki vatni halda yfir limaburðum kappans. Svo gaf hann okkur stöllum sinn bjórinn hverri(sem vakti mikla öfund annarra kellinga og ein gekk svo langt að sleikja glasið mitt) og leyfði Betu að syngja uppi á sviði. Eftir tónleikana lofaði ég einni ungri snót að hjálpa henni að tala við Jónsa(veit ekki hvaða sambönd ég hef, en hún hafði tröllatrú á mér eftir að hann gaf mér bjór). Ég vatt mér uppað honum og ætlaði að kynna hann fyrir snótinni en talaði svo bara við hann sjálf, því það kom í ljós að hann mundi eftir mér frá Seyðó....sérdeilis merkilegt. Svona eiga popparar að vera!!!
Tók svo þá snilldarákvörðun að labba heim af Players því þetta er svo sutt...var alveg lengra en mig hafði órað fyrir, en Fannsan komst heil heim....var þó samt ekkert sérstaklega heil. Fékk mér samloku að hætti hússins sem ég var ekki lengi að skila þegar loftið í herberginu fór að snúast. Frábært kvöld....þetta var einmitt svona óvart djamm, sem geta verið svo gasalega skemmtó.
Í lokin er smá áskorun, því sumir(nefni enginn nöfn, en það byrjar á Þ) lofuðu að hefja sitt eigið blogg ef að ákveðnir atburðir skyldu eiga sér stað í gær....og viti menn þeir áttu sér stað.