Fanney keepin´t cool

mánudagur, mars 22, 2004

Jæja komin heim á kalda klakann eftir alveg hreint magnaða ferð til Strasbourg. Fannsan, Ródís Ássa og Júkel Ralía lögðu grandalausar af stað síðastliðinn þriðjudag...ekki hvarflaði þaðað þeimað þær ættu eftir að:
Lenda á flugvelli í Þýskalandi...sem var in the middle of nowhere!
Gráta af gleði við að hitta Gutlu Kaðrúnu!
Vera fullar 4 kvöld í röð!
Éta u.þ.b 1 kg af osti á dag, per haus!
Kynnast fullt af skemmtilegu fólki!
Hneyksla Frakka niður í pung og til baka!
Læra að rappa!
Búa til fullt af nýjum frösum sem koma sér vel í daglegu lífi!
Borða mikið af góðum mat!
Smitast af franskri kvefpest sem er upprunin frá Le Trou!
Dansa skelfilegan ljótudans!
Drekka mjööög vafasöm stauð!
Drekka bjór úr súlu(nánast hápunktur ferðarinnar...hehehehhehe)
Drekka carbomb!?!
Ganga af okkur lappirnar!
Hlæja nonstop í 4 daga!
Heyra sögur af Gutlu Kaðrúnu úr æsku, sem voru vægast sagt fyndnar!
Heyra brandara frá starfsfólki lággjalda flugfélaga, sem er alveg flippað og er djókar stanslaust í hátalarkerfið!
....þetta var bara alveg hreint mögnuö ferð í alla staði...Eins og ég segi alltaf, gott fólk, góður matur og vín er hin gullna blanda:)
Takk fyrir mig Gutla Kaðrún og Hörður, þið eruð höbbbðingjar heim að sækja!
Mig langar eila bara að fara aftur út!!!

P.s: Hversu klámóðir eru þjóðverjar, svona á skalanum 1-10? Á litla flugvellinum í Hahn(middle of nowhere) var að finna hárgreiðlustofu, þar sem allir voru með bleikt hár, unglingaverlsun og klámbúð. Já klámbúð!!!!!!! Hversu steikt er þetta?
Einhver miður smekkleg kona að kaupa sér risa dildó úr náttúrulegu gúmmíi svona rétt áður en hún fór um borð. Við vorum eins og smástelpur þarna inni og tístum yfir mjög svo frumlegum hjálpartækjum. Einnig var þarna mjög gott úrval klámmynda og fjallaði ein meðal annars um það, hvað má nýta úr eldhúsinu til kynlífsbrúks.