Fanney keepin´t cool

föstudagur, apríl 30, 2004

Fínasti afmælisdagur í gær. Fékk geðveikt góðan mat og köku..mmm. Fékk svo grill í ammligjöf, nú verður sko aldeilis grillað í sumar...brenndar pullur og með því verður á boðstólnum í garðinum mínum í allt sumar, verið öll hjartanlega velkomin. Endaði daginn í ammlisbjór með Dísunni, sem var alveg kærkomið eftir að hafa eytt deginum í lestur!

Ég vil þakka öllum þeim sem hylltu mig á afmælisdaginn á einn eða annan hátt...*smootch* til ykkar. Þið sem gleymduð mér... megið búast við silent treatment!!