Jiminn eini detti nú allar dauðar lýs af píkuhári mínu...ég er á hlöðunni á laugardagsmorgni. Hversu skelfilegt er það á skalanum 1-10? Mér leiðist alltaf alveg skelfilega á hlöðunni, núna er ég t.d búin að búa til sögur um alla þá sem sitja við hliðina á mér...hvernig lífi þeir lifa osfrv. Áðan tók ég mig svo til og tók eitt arabaflikkflakk eftir ganginum og hékk svo í bókarekka eins og spiderman. Fólk sem átti leið hjá rak upp aðdáunaróp þegar ég stökk svo frá einum rekka til annars. Ég er ekki frá því að ég sé ein dáðasta manneskjan á hlöðunni í dag. Eftir spiderman-leikinn minn fór ég svo niður og kældi mig aðeins í gosbrunninum...ohhh svo gott.
laugardagur, apríl 17, 2004
<< Home
