Fanney keepin´t cool

fimmtudagur, júní 10, 2004

Þvílík og önnur eins bongóblíða sem gleður borgarbúa þessa dagana. Held samt alveg að við höfum átt þetta inni hjá þeim sem ræður. Þetta er alveg veðrið til að grilla og sötra öl með því. Reyndar fær svona veður mig til að stríplast útí garði og gera æfingar. Ekkert betra en að gera magaæfingar og armbeygjur á evuklæðunum einum saman, svo gleður það nágrannana ekkert lítið. Reyndar hef ég ekki komist til að gera æfingarnar í dag, því ég var að taka til, jeij. Tiltektin var ekki mitt frumkvæði í þetta sinn, heldur gert af illri nauðsyn því fjölskyldan hefur boðið sér í mat í kvöld. Stúlkan á að elda nautalund sem mamma kom með í poka áðan...ásamt öllu hinu meðlætinu, eina sem ég þarf að gera er að elda herlegheitin og skaffa húsnæði, ísípísí.
Jæja ætla henda mér í æfingarnar...later!