Allt að gerast í kvöld...3 partý og almenn gleði á kanntinum. Gleðin hefst stundvíslega klukkan 1900 með pizzuveislu og þambi hjá ljóni nokkru sem kennt er við rautt. Því næst skal haldið í kántríkveðjukaríókíveislu hjá Betunni, þar sem glasalyftingar halda áfram og hver veit nema maður taki lag eða tvö. Ásdís verður allavega að syngja 'These boots are made for walking' þar sem hún fjárfesti í geðsjúkum bútsum í hádeginu. Eftir að hafa þanið raddböndin verður haldið í annað kveðjuboð, en með afmælisívafi í þetta skiptið. Björn nokkur Hildir stendur fyrir gleði á felix og er nærveru minnar óskað...sem sagt alllllt að gerast og mikið um gleði og glasalyftingar í kvöld.
Góða helgi lömbin mín!
Góða helgi lömbin mín!
