Nýafstaðin helgi fór fram með besta móti. Á föstudaginn var blásið til líffræðidjamms, sem varð svo ekkert svo mikið líffódjamm. En gaman engu að síður. Minnir að við höfum endað á hverfis í danspakka...
Laugardagurinn fór í sólbað og svo kíkti ég með Ásdísi og co í einhverja sigurvímugleði á pravda. Fínasta partý, en pravda er með verri stöðum á Íslandi...ég bara fer ekki ofan af því.
Lunganu úr sunnudeginum varði ég svo í sveppatínslu, tíndi þó ekki ofskynjunarsveppi, heldur alíslenska matarsveppi á borð við kúalubba og lerkisvepp. Í gærkveldi setti ég svo upp svuntuna og bauð dísunni í villisveppa risotto...rann ákaflega vel niður með vel kældu hvítvíni..mmmm.
Við Anna Brynja leigðum svo spólu áðan, sem er reyndar búið að standa til í allt sumar. Fannsan stóð sig mjög illa og svaf ALLA myndina. Gæti ekki þótt lífið lægi við sagt ykkur um hvað "the girl with the pearl earrings" er um...