Fanney keepin´t cool

mánudagur, júlí 19, 2004

Ég byð forláts á þessu bloggleysi hjá mér, maður bara nennir ekki að hanga í tölvunni þegar veðrið er svona gott.  Ég lenti í skondu atviki áðan, jahér.  Þannig var það, að ég var úti að þvo bílinn minn, sem hefur ekki fengið bað síðan síðasta sumar. Skyndilega, rétt eins og hendi væri veifað stakk mig eitthvað í afturendann....
Ég hélt að ég hefði rekið ferlíkið í rósarunna, en neinei engan slíkan að sjá. Fljótlega rann það upp fyrir mér að þetta var eflaust hefnigjarni geitungurinn sem var kominn í laglega vímu af ameríska undrabóninu. Mér leið eins og að ég væri með skrúfblýant hangandi útúr hægri rasskinninni og orgaði eins og smástelpa á viðstadda að hjálpa mér. Stefán faðir minn var ekki lengi að sinna geðsturlunarópum dóttur sinnar og slafraði u.þ.b 300 ml af gæða vodka á slysstaðinn.  "jújú þetta er geitungur" sagði hann sposkur á meðan hann hélt niðri í sér anda og tárum sökum hláturs.  Nú er þannig í pottinn búið að ég er með stærðar kýli á aftar óheppilegum stað, og hef lýst yfir heilögu stríði á hendur þessum óvinum mínum. Fjárfest verður í ýmiskonar tólum og tækjum til að ráða þessi helvíti af dögunum...fólki er frjálst að ganga í lið með mér, hver með sinn garð sem vígvöll. Biðjið fyrir ykkur og signið í bak og fyrir þegar þið sjáið óvininn nálgast.