Fanney keepin´t cool

mánudagur, september 06, 2004

Fínasta helgi að baki. Róleg bíóferð á föstudaginn sem endaði í sukki...allt Edda að kenna. Eddi er maður sem dældi drykkjum oní mig og Ásdísi eins og hann hefði ekkert annað við lífið að gera. Svo þar sem við erum svo assskoti vel uppaldar þá gátum við náttúrulega ekki neitað þessum guðaveigum og sátum að subli langt fram undir morgun.
Á laugardaginn var svo óvissuferð með Actavis sem endaði í skorradal í 'survivor leikjum' og bjór. Rosa gaman, en vá hvað grownups geta verið leiðinlegir þegar þeir enda aðeins og neðarlega í glasinu. Rútan útæld og blótsyrðin fuku...úffffpúffff.
Ný vinnuvika hafin með tilheyrandi gleði. Sá það í dag að nýja vinnan á heldur betur eftir að reyna á 'éggetekkimeittdýrhjartað' mitt. Var að æfa mig í dag í þeirri list að halda á mús, þannig að hún geti ekki hreyft sig...jesús minn, það reyndist þrautinni þyngra. Í fyrsta lagi er ég með aðeins og litlar hendur í þetta, þannig að mýslan er ekki alveg föst. Í öðru lagi reyna mýs eftir fremsta megni að bíta mann...fast. Þannig að sökum þess að ég get ekki haldið músinni nógu vel, er ég komin í tölvuverða hættu á því að verða bitin...ekki gott. Svo í þriðja lagi, þá fæ ég alveg sting í hjartað við hvert tíst og vein sem greyin gefa frá sér...alls ekki nógu gott, ef maður ætlar að vinna við dýratilraunir næstu árin.
Ergo:Fanney þarf að herða sig...og fá sér fingralengingu!
Rottur on the other hand, eru krúttaraleg dýr. Þær vilja bara kúra hjá manni og láta klappa sér. Maður hefði haldið að þær væru grimmar, en ónei þær eru meira að segja skítlafandihræddar við mýs.
Lærdómur dagsins...rottur = Ok......Mýs = ekki ok.