Fanney keepin´t cool

sunnudagur, september 26, 2004

Rólegasta helgi í manna minnum að renna sitt skeið. Föstdagskvöldinu var eytt í vídjógláp, framhaldsmynd í tveimur hlutum um ævi Adolfs nokkurs Hitlers. Laugardagurinn tekinn snemma og Pétur greyið þrifinn hátt og lágt. Bauð svo Dísunni í indverskan mat í hreinan og fínan Pétur. Var sofnuð fyrir miðnætti...sem telst til tíðinda, svona annað kvöldið í röð!

Sá merki atburður átti sér svo stað að Fannsan skellti sér á fótboltaæfingu með actavis-píum eldsnemma í morgun. Merkilegt hvað ég er orðin léleg...úffff alveg skammarlega léleg! Gamla Fótbolta-Fanney hefði sko hlegið sig máttlausa yfir arfaslakri fótafimi hefðu hún séð þetta...issss. Rústa þessu næsta sunnudag...