Loksins...loksins...loksins 1.desember í húsi sem gleður Fönnsuna gríðarlega. Fyrir það fyrsta þá er útborgunardagur og ég get hætt að stela skyri foreldra minna til að nærast á kvöldin. Í annan stað þá hef ég sett mér þá reglu að byrja ekki að jólaskreyta eða hlusta á jólatónlist fyrr en 1.des, sem þýðir að ég má formlega byrja að fá jólaandann í mig....setti meira að segja eina seríu upp í gær og kveikti á kerti. Gríðarlega jóló! Nú langar mig að taka allan pakkann, föndra jólakort, baka sortir og ganga um með jólasveinahúfu.
Í gær átti ég ákaflega steikt móment. Ég var búin að vera að keyra og lagði bílnum í stæðið mitt. Fannst síðan ákaðlega sniðugt að vera búin að finna húslykilinn áður en ég færi útúr bílnum, svona svo mér yrði ekki kalt. Drap á bílnum og fór að leita í töskunni minni...mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds...shittt lykillinn var ekki þarna. Þetta er stór kippa sem týnist ekkert í veskinu manns. Gvuð minn andskotans góður hugsaði ég, hvar getur nú kippan verið? Nú voru góð ráð dýr...ég andvarpaði og hallaði mér aftur í bílsætinu og sá þá hvar kippan stóð í bílstartaranum!!!