Fínasta helgi afstaðin og mánudagur í húsi. Alltaf einhver þreyta í manni á mánudegi, þó svo að maður ætti að vera endurnærður eftir helgina.
Smellti mér í bíó á föstudaginn á motorcycle diaries...mjög góð, 4 stjörnur. Var öllu órólegri á laugadaginn og raðaði í mig mojito og smellti mér á ball með í svörtum fötum. Lenti í 19 slagsmálum við ljótar slordísir frá raufarhöfn(eða álíka) sem voru að reyna að komast nær Jónsa. Þær gripu um hans heilagasta og tóku myndir í gríð og erg. Ein vippaði júllunum út og lét greyið Jónsa skrifa með augnblýant þvert yfir herlegheitin sem voru á stærð við Asíu. Hrökkluðumst út þegar meðdjammarar mínir voru orðnir hræddir um að troðast undir slordísirnar. Komust lifandi út og kíktum á hverfis þar sem meðalaldurinn hækkaði um 7 ár þegar við löbbuðum inn...sorglegt hvað maður er orðin gamall.
Enduðum á Nonna og gerðum góðverk, skutluðum fórnarlambi slagsmála heim til sín án endurgjalds...eitt góðverk á dag kemur skapinu í lag.
Rólegheit og útivera á sunnudegi gerir líka gott fyrir skapið.
Endaði svo helgina á nokkrum 24-þáttum og er að missa vitið af spennu..."my name is Jack Bauer....the following takes place between 1pm and 2pm"