Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Hið ómögulega hefur gerst...hundadýrkandinn Fanney fékk sér kisu í gær!!!
Já, einveran og karlmannsleysið var að buga mig og þá fær maður sér kött. Ætla samt ekkert að halda afmælið hans hátíðlegt eða láta bæta honum á nafnspjaldið á hurðinni.
Well anywho, fékk krílið í kattholti...hann er samt ekkert lítill, alveg 10mánaða og honum fylgir mikill hasar inná heimilið. Það var allavega ekki mikill friður í gær og í nótt :)
Hann er bröndóttur, samt ekki svona venjulega bröndóttur...meira svona eins og tígrisdýr með doppum, heitir það kannski hlébarði? Allavega nú er vandamálið hvað dýrið á að heita...
...hvað finnst ykkur, Gormur eða Dreki?