Fanney keepin´t cool

fimmtudagur, desember 14, 2006

Jólavinaleikurinn....
Við í vinnunni erum búnar að vera í jólaleynivinaleik alla vikuna. Þetta er gargandi snilld. Jólavinur minn(sá sem laumar til mín gjöfum og góðgæti á hverjum degi) er dúx vikunnar.
Fyrsta daginn held ég að hann hafi gleymt mér...en hefur heldur betur tekið sig á og er gjörsamlega að sigra þennan leik.
Fékk kúlusúkk í skál og plasma sjónvarp(bara mynd af því sko) á þriðjudaginn, svo fékk ég toblerone og heilræði í gær.
Svo þegar ég kom til vinnu í morgun(frekar pirrípú), var búið að vefja jólaseríu um skjáinn minn, setja kerti á borðið og súkkulaði í skál. Svo stóð á miða "...gaman að sjá þig,þetta verður góður dagur..." og svo "Byrjaðu daginn á að kveikja á kerti og njóta súkkulaðis með morgunkaffinu"
Yndilegt að byrja daginn svona.
Svo þegar ég kom úr kaffi áðan var þessi elska búin að setja jóla brie og sultu á borðið mitt og ráðlagði mér að hlúa að sálinni á aðventunni með því að fá mér rauðvín og ost...mmmm selt, fæ mér ost í kvöld!
...Og bíðið bara ekki nóg með að dekra mig með gjöfum þá er vinurinn alltaf að skilja eftir sálareflingar blöð á skjánum mínum. Þar er ég beðin um að fara inn á salerni og horfa í spegilinn og segja t.d "I deserve good things. I am entitled to my share of happiness.I refuse to beat myself up.I am attractive. I am fun to be with" og klassíker eins og "I am good enough. I am smart enough and doggonit People like me!"
Jáhh það er gaman í jólavinaleik á aðventunni..jeij