Fanney keepin´t cool

föstudagur, nóvember 17, 2006

Simple mind, simple pleasures!
Jáh það þarf sko ekki mikið til þess að gleðja mann þessa dagana þegar svona kalt er í veðri.
Reykingarpakkið hérna í vinnunni stendur alltaf fyrir uppákomu kl 3 á föstudögum í bílageymslunni. Atburðurinn nefnist "partytrick at three". Margt skemmtilegt hefur verið gert. Síðast kom ein með kókosbollu og tróð henni uppí sig og drakk eina litla kók með...það var glæsilegt. Það kom reyndar ekki gos útum nefið á henni eins og viðstaddir óskuðu eftir, en það gaus smá útum munninn. Í dag var svo komið að mér. Ég skoraði á þau í keppni um það hver gæti gert lengstu öskuna. Þau vissu ekki að ég hafði troðið vír inní sígarettuna og rústaði þeim. Það datt engin aska af og þau klöppuðu öll af kátínu. Svo til að toppa allt, þá sýndi ég lítinn galdur. Einn gekk svo langt að kalla mig partýdrottningu...ég er stolt í dag.