Fanney keepin´t cool

sunnudagur, desember 08, 2002

Mikið svakalega er auðvelt að missa vitið í próflestri. Prófin ekki byrjuð og ég er orðin nötts. Búin að vera í stífu erfðafræðiprógrammi síðustu daga en er engan veginn að fatta þetta. Hvers vegna er engin snillingurinn búinn að finna upp minnisgen.....það mundi hjálpa tossum eins og mér mikið á svona álagstímum. Djö....hata ég að þurfa að fara í próf og kunna nánast ekkert....það er ekkert gaman í prófi þegar maður gerir ekkert annað en að éta nestið sitt, skrifa nafnið sitt og teikna typpamyndir á prófblaðið.
Maður verður víst að treysta á gvöð og lukku næstu daga.....