Fanney keepin´t cool

mánudagur, október 13, 2003

Jeij hvað það er gaman að vera túristi í eigin landi!! Fór "the golden circle" í gær, labbaði laugarveginn (alveg í fyrsta skipti í ár) í dag, og svo fer ég í lónið á morgun...jeiiij.
Planið er að fara með útlendinginn í keilu í kvöld...snilllllldar íþrótt og góð kvöldskemmtun, sérstaklega ef maður lendir við hliðina á "ekta keilufólki". Þannig fólk getur glatt mig í heila viku...þúst það á sína eigin kúlu, eigin skó, eigin pússningarklút og fleira. Þessu fólki finnst ekkkkkkkert fyndið þegar við "lélega fólkið" missum kúluna aftur fyrir okkur, eða látum hana skoppast milli brauta eða eitthvað slíkt....neinei því stekkur ekki bros, því keila er alvara lífsins.