Fanney keepin´t cool

þriðjudagur, október 21, 2003

Work phobia (WP) á hæsta stigi hjá mér þessa dagana. Er með fyrirlestur í mannerfðafræði á morgun og er varla byrjuð...ekki beint vænleg staða.
Gerði mér glaðan dag á laugardaginn eins og stefnt var að, ég og Þurý kíktum í heimsókn til Heiðrúnar og Hrannar. Mikið um málefnalegar umræður og gleði. Betan kom svo og fékk sér smá neðan í því með oss. Fórum á Borgarbarinn og sáum Hildirhans leika fyrir dansi, ég fékk ekki að taka lagið, en kannski næst...hver veit. Mikið af skemmtilegu fólki saman komið til að berja hljómsveitina augum, sem stóð sig með stakri prýði....
Ég og Heiðrún enduðum á 22 og svo á hlölla(sem er viðbjóðslega vondur matur...ojjjj). Mjög gott kvöld, en nokkuð var um steikt móment. Væri alveg til í að sleppa þeim í framtíðinni ;)
Jæja back to work, má ekki láta WP ná til mín í dag.....