Jæja ekki mikið að gerast í mínum heimi þessa dagana. Gerði mér þó glaðan dag í gær og skellti mér út að borða með Ásdísi og Heiðrúnu í tilefni þess að Ásdís er nú komin í fullorðinna manna tölu. Skolaði öllu saman niður með nokkrum bjórum...ahhhhhh.
Á laugardaginn mun maður svo gera sér glaðan dag á ný og skella sér á tónleika með snilldarbandinu Hildirhans!! Fróðir menn lofa gríðarlegri stemningu og svita. Aldrei að vita nema að ég dobbli strákana aðeins og fái að taka ´total eclipse of the heart´.....aþþí að ég syng eins og engill. Verst að Ketillinn skuli ekki vera hér til að bakradda þetta hjá mér......:)
Góða helgi gott fólk