Fanney keepin´t cool

mánudagur, nóvember 24, 2003

Gríðarskemmtilegt afmælisboð á föstudaginn, góður matur, gott fólk og mikið vín!! Hin heilaga þrenning! Fórum undir lok afmælisins á Hverfis og dönsuðum við gargandi músík er kennd er við klof kvenna. Endað á 22 af gömlum sið og fór vel á með fólki þar. Frétti svo daginn eftir að afmælisbarnið sjálft hefði verið rænt á lækjartorgi.....taskan bara hrifsuð af henni og auminginn sem það gerði tók stelpuna á sprettinum. Allt getur gerst í borg óttans, Reykjavík. Til allrar hamingju og lukku fannst taskan svo, og þá komst í ljós að þetta var einn versti þjófur sögunnar. Hann stal sem sagt, biluðum síma, finnsku sim-korti, þúsundkalli og tappa af glossi...og braut svo pæjuvaralitinn sem var þarna að þvælast. En vá tappa af glossi....why on earth??!?! Studid guy "ojjj vondur gloss, en ég ætla að taka tappann svo það fari sandur og allskyns ógeð í hann"....tssssss.
Já Reykjavík er ekki lengur lítil saklaus borg....