Jahérna hvað það getur verið óspennandi að sitja með sjálfum sér og gera ritgerð í margamarga daga. En ég er þó búin að koma hausnum í gang fyrir prófin, he´s on fire. Í dag hugsaði ég t.d svo mikið að það var farið að suða í hausnum á mér, og þegar ég talaði í símann, þá suðaði í símanum og komu bara truflanir. Held að ég verði að hvíla hugsanirnar í smá stund. En ég er búin að komast að ýmsu.....bæði um mig, hina og þessa. Gaman að því, alltaf græðir maður eitthvað :)
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
<< Home
