Fanney keepin´t cool

laugardagur, mars 27, 2004

Átti alveg yndislega kvöldstund með Dísunni í gær, átum á okkur gat (ekki í fyrsta skipti), drukkum rautt og spjölluðum um heima og geima.
Fékk sms í nótt frá ungri stúlku í strasbourg hún virtist í annarlegu ástandi, allavega fór íslensk stafsetning eitthvað fyrir ofan garð og neðan hjá henni!
Planið í dag er að reyna að gera eitthvað smá í þessari blessuðu ritgerð, já ekki seinna vænna því mín bíður önnur ritgerð á kantinum. Reyndar fæ ég afskaplega kærkomna truflun seinni partinn þar sem aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra og spúsi hennar ætla að kíkja í kaffi...jeij gamangaman!
Ritgerð smitgerð núna...gleði! Nenni ekki að gera þetta helvíti, langar bara í bjór. Ef einhver á bjór á kantinum og vill deila honum með mér í kvöld, kommon óver ;)
góða helgi!!

P.s hef bætt inn nýjum bloggara, Hörpu Hrönn. Hún er einmitt duglegasti kommentarinn á síðunni minni!