JööööööööSsssSSsssSSSsssss....Fannsan er komin með vinnu. Þvílík og önnur eins gleði sem ríkir í mínu hjarta. Það er nebblega ekkert gaman að hanga einn heima í einn og hálfan mánuð og gera ekki neitt...hummpff. Þessum áfanga verður fagnað vel og innilega í kvöld. Blásið hefur verið til mojito-fest í pétri og hver veit nema mojito dansinn verði tekinn, jahh eða saminn, því hann er ekkert til. Einnig þarf að fagna því að hún þurý mín er komin á klakann með myndarlega bumbu. Bumban var víst eitthvað sein að koma og lét fyrst sjá sig fyrir 2 vikum, sem er gott því ég hefði sko ekki fílað að vera með stærri bumbu en konan sem er komin 4,5 mánuði á leið.
mojitosumarkveðjur til ykkar...lælælæ
mojitosumarkveðjur til ykkar...lælælæ
