Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, desember 15, 2004

Fer þessu ekki að linna...búin að vera veik í viku núna og er alveg komin með nóg. Sé ekki fulla sjón og heyri ekki hálfa heyrn fyrir hori sem virðist hafa safnast fyrir í hausnum á mér. Hvaðan kemur eiginlega allt þetta hor?
Búin að vera of mikið með sjálfri mér þessa dagana. Ég og Fanney alveg farnar að þræta um hvor eigi að sjá um uppvaskið og hvor eigi að elda. Þessi einangrun er að fara illa með sambúðina.
...Og það versta er að heimilið hefur ekki átt diet kók í laaaangan tíma...húsfreyjan að tryllast. Þeim fáu gestum (2) sem hafa þorað inní gerlabælið hefur láðst að taka með sér mjöðinn góða til að kæta fönnsuna. En þeir komu þó með sinn glaðninginn hvor. Pabbi með mat og brósi með DVD safnið sitt. Ætla immmmmitt að smella harry potter í tækið núna...túrílú