Úffff mér er verulega farið að leiðast. Til merkis um það, þá skrúbbaði ég baðkarið mitt í gær og las fréttablöð síðustu viku aftur. Síðan tók ég til hendinni og límdi sjálflýsandi stjörnur í loftið fyrir ofan rúmið mitt. Ég reyndi eftir besta minni og þekkingu að búa til eitthvað stjörnumynstur, skapa soldið í loftið. En þetta lítur meira svona út eins og kallinn í tunglinu hafi ælt sjálflýsandi ögnum yfir loftið...splatter stemmning!!
Skemmti mér samt konunglega þegar ég lá andvaka í nótt við að reyna að sjá karlsvagninn, oreon, stórabjörn og annað spennandi útúr ælumynstrinu...gríðarlega hressandi.
Skemmti mér samt konunglega þegar ég lá andvaka í nótt við að reyna að sjá karlsvagninn, oreon, stórabjörn og annað spennandi útúr ælumynstrinu...gríðarlega hressandi.
