Fanney keepin´t cool

mánudagur, júlí 10, 2006

Hvað eru áhyggjur? Er það ekki bara eitthvað oná brauð? Þetta er eitthvað svona sjálfskapað hugarástand sem maður kemur sér í. Maður býr oft til aðstæður í hausnum á sér sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Stundum er maður kominn svo langt fram úr sjálfum sér í að mála skrattann á vegginn að helstu áhyggjurnar verða hvort maður gangi heill til skógar. Ég er til dæmis Íslandsmeistari í að mála fyrrnefndan skratta á vegg. Ég get legið andvaka heilu næturnar og farið með hugann á staði og í aðstæður þar sem allt gengur á afturfótunum. Kannski lifi ég svona áhyggjulausu lífi, að ég finn mig knúna til að búa til aðstæður í hausnum á mér og fá smá áhyggjur. Svo fatta ég að áhyggjurnar voru óþarfar og mér finnst ég sniðug að hafa tekið svona vel á málinu...já ég er alveg keppnis.
Stundum er maður þó með ekta áhyggjur, hvort sem þær eru yfir eigin lífi eða annarra. Ég held að mínar áhyggjur séu ekki meiri eða minni en gengur og gerist, þær eru bara þarna. Þær eru hluti af því að gefa lífinu lit.
Þær hafa verið til í hausnum á okkur svo lengi sem við höfum haft sjálfstæða hugsun. Þær breytast ár frá ári, og alltaf finnst manni þær jafngildar.
Þegar maður lítur svo til baka og spáir í fyrri áhyggjum, getur maður ekki annað en glott við tönn.
Þegar ég var 4 ára voru mínar mestu áhyggjur hvort að ég ætti að eiga þríhjól með bjöllu eða palli aftan á. Svo þegar ég var 7 ára var það dúkkan mín hann Stebbi. Ég hafði áhyggjur af því að hann svæfi ekki nóg og gerði aðeins og oft í sig. Svo þegar ég nálgaðist fyrsta tuginn hafði ég gríðarlegar áhyggjur af því hvort mamma gæti þvegið apaskinnsgallann minn á nóttunni svo ég gæti verið í honum alla daga. Þegar ég var 12 vetra, hafði ég svo miklar áhyggjur yfir því hvort ég ætti að fara í snjókast eða búa til snjókall í frímínótum. Allt góðar og gildar áhyggjur á sínum tíma. Ég mun aldrei gera lítið úr þeim. Ég mun heldur aldrei gerið lítið úr áhyggjum annarra, sama hversu fáránlegar þær kunna að hljóma. Áhyggjur eru gott og gilt hugarástand.