Átti svo yndislega kvöldstund með henni Ásdísi minni í gær. Snæddum kvöldverð á nauthóli og fengum okkur svo langþráða fimmtudagskollu. Okkur taldist til að kollan sú kennd við fimmtudag hafi verið vanrækt í 1,5 ár.
Ætla nú ekki að fara að tíunda samtal okkar en það kom alveg eitt gullkorn í gær. Fórum í höfuðborgarleikinn á leiðinni heim...
Ég: ok höfuðborg Eistlands?
Ásdís: Tallin
Ég: Ok. Lettland?
Ásdís: Litháen.
........henni fannst einhvernveginn svo eðlilegt að þessi 3 lönd þyrftu alltaf að vera nefnd saman.
Reyndar fór svo leikurinn í rugl þegar ég sagði Kúba og hún sagði Lúba....þá var kvöldið búið.