Fanney keepin´t cool

sunnudagur, desember 24, 2006

Grinch er með öllu horfin úr mér. Ég er hætt við að stela jólunum úr hjörtum ykkar. Ég er hér með komin í jólaskap. Já við hér á mínu heimili erum í jólasköpum. Reyndar virðist jólasveinninn hafa gleymt mér í nótt en það kemur ekki að sök. Huggulegur kakóbolli í ekta íslensku veðri á Laugarveginum í gærkvöldi, gjafainnpökkun, morgunmatur í rúminu með fréttablaðið í einni og tölvuna í hinni eiga sinn þátt í að koma með jólin í hjarta mitt. Svo skemmir ekki fyrir að móður minni áskotnuðust 3 rjúpur, sem þýðir að ég,mamma og pabbi(þau á heimilinu sem fíla rjúpur) getum fengið eina lita rjúpu á mann...hin geta bara fengið eitthvað annað. Jólin eru tími afslöppunar og huggulegheita, og ætla ég að sjá til þess að gera nóg af hvoru tveggja.

Gleðileg jól vinir mínir, hafið það sem allra best yfir jólahátíðina.