Fanney keepin´t cool

fimmtudagur, maí 31, 2007

Ég hef verið að spá í því hvaða lög ég gæti sungið í eyru fólks frá og með morgundeginum til að hljóðmenga sem allra mest.
Mér hefur aldrei tekist vel til með þjóðsönginn, þannig að ég held að setji hann í fyrsta sætið. Ég mun öskra "Íslands þúsund ár...Íslands þúsund ár" í eyru fólks þegar reykingarpirringurinn nær hámarki. Jafnvel mun koma smá fruss með, þegar ég legg áherslu á "þúsund".
Annað lag sem ég hef hugsað mér að taka þegar sígóþörfin er svona rétt að ná hámarki er "brennið þið vitar"...ég gæti lækkað rödd mína niður um tvær áttundir og jafnvel ropað smá bjór með.
Ef fólk ætlar að vera með almenn leiðindi og tala endalaust um ferskt loft og slíkan viðbjóð, mun ég reka við og syngja "shake that bootie" og nudda óæðri endanum á mér utan í það.
Jáhh fólk mun sjá eftir þessu banni þegar ég mæti á djammið og sígóþörfin fer að segja til sín.
Biðjið fyrir ykkur!