Fanney keepin´t cool

miðvikudagur, maí 23, 2007

Mér er margt til listanna lagt, en að syngja keðjusöng er mér fyrirmunað að gera.
Lög eins og "sá ég spóa" og "meistari jakob" hafa aldrei fallið sérlega vel í kramið hjá mér. Ég rugla sjálfa mig og meðsöngvara mína alltaf í ríminu. Rímið í "sá ég spóa" fer alveg með mig. Ég verð alltaf svo æst að komast í lokapartinn þar sem maður segir "bíbíbí" að ég fer bara beint þangað og syng eins og lóan...bíbíbíbíbí....meðsöngvurum mínum til mikillar gremju.
Keðjusöngur er því eitthvað sem ég hef ákveðið að leggja á hillunaí bili.
Söng ætla ég hinsvegar að fara að brúka í miklum mæli þegar reykingarbannið tekur gildi. Ég ætla að menga fyrir fólki með því að syngja hátt og snjallt í eyrun á því. Ég verð óþolandi syngjandi konan frá og með 1.júní.