"Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvað þú færð". Þetta mælti miður greindur maður eitt sinn. Ég hef aldrei náð þessari líkingu. Það fylgir alltaf myndskreytt innihaldslýsing með hverjum mola, svo þú veist nákvæmlega á hverju þú átt von. Ekki skrítið að þetta hafi komið frá manni með greindarvísitölu á við herbergishita.
Ég hef kosið að líkja lífinu við bók. Engar tvær bækur eru eins. Svo getur lífið líka verið kaflaskipt, rétt eins og bók. Maður klárar einn kafla og veit ekkert hvað næsti kafli býður uppá. Fólk sem auðgar líf manns í einum kafla, þarf ekkert endilega að koma við sögu í þeim næsta. Sumar persónur í bókinni verða aðal og sumar auka. Sumar vill maður hafa í gegnum alla bókina, en aðra er maður fegin að losna við. Kaflar lífsins eru mislangir, miserfiðir og misspennandi...rétt eins og í bókinni.
Ég hef ekki alveg komist að því ennþá hvaða bók lýsir mínu lífi, sennilega bara "Bókin Um Fannzýpannz". Hún er ekki fullkláruð...en hefur að geyma marga skemmtilega kafla.
Munið svo að dæma ekki bókina af kápunni!!