Skilaði einni ritgerð í dag...þá er bara ein eftir. Held að ég nái ekki að klára hana fyrir morgundaginn, eins og stefnt var að, en ég rústa þessu bara um helgina er þaggi?! Annars er bara mest lítið að frétta héðan úr heimi Fönnsunnar. Brá mér þó í búning Völu Matt áðan og spöguleraði í flísum..."jöööö gasalega smart" sagði ég svo við sjálfa mig hvað oní annað. Er sem sagt algjörlega að tapa mér í íbúðarleik...Skemmtilegur leikur, miklu skemmtilegri en búðarleikurinn í den. Hvað var það by the way.."ég verð búðarkona og þinns verður kúnninn sem kemur og kaupir mjólk". Ó hve æskan var ljúf!!
fimmtudagur, nóvember 27, 2003
<< Home
