Fanney keepin´t cool

fimmtudagur, desember 25, 2003

Gleðileg jól öllsömul. Ég sendi engin jólakort í ár, og þykir það miður. En ég fékk bara 2 þannig að enginn skaði skeður:)
Gærkveldið var yndislegt, hriiiiiikalega góður matur, mikið rauðvín, margir pakkar og svo videre. Eins og við var að búast fékk ég fullt af dóti til að prýða nýju íbúðina mína, eða hann Pétur Jóhann eins og margir vilja kalla hana. Ég fékk m.a Braun matvinnsluvél, sem ég er reyndar ekki búin að fá því mamma gleymdi að kaupa hana fyrir ömmu. (talandi um jólastress). Svo fékk ég George Formann grill (á víst að fara í megrun), rauðvínsglös (þarf að drekka meira), Matreiðslubækur (á að fara að bjóða í mat), espresso bolla (....og kaffi), skál (ekkert hint held ég), svo fékk ég líka alls konar dót. Þó ekkert dónó eins og Beta. Vaknaði við hangikjets ilm í morgun og stóð á beit í nokkra tíma...mmmmm. Horfði svo á Finging Nemo sem að Hera gaf mér...Hera gerði btw reyfarakaup þetta árið, gaf öllum svaka flotta pakka.
Jæja ætla að fara að munda nýja mp3 spilarann minn....