Fanney keepin´t cool

mánudagur, desember 01, 2003

I do care if mondays blue...ussumsvei, þetta er ljóti og leiðinlegi dagurinn...ekki alveg að fíla það. Margir ljótir dagar framundan þar sem prófin fara að renna í hlað. Er enn að basla við einhverjar ritgerðir sem ég skil hvorki upp né niður í.
Ágætis helgi nýafstaðin. Varð svolítið slompuð á föstudaginn, og ætla ég að skella skuldinni á einhvern annan en mig, nemlig konuna með staupin. Fór svo í ´viskíklúbbinn´á laugardaginn, en sleppti þó viskíi og öðru slíku sökum timburmanna og skólasamviskubits.
Kíkti í kaffi til Thunder í gær og rústaði henni í yatsí....reyndar ekki fyrr en í bráðabana, en samt rúst ;) Hvet ég alla til að grípa í yatsí við tækifæri, merkilega gaman.