Fanney keepin´t cool

fimmtudagur, janúar 29, 2004

Fyrsta vísindaferð ársins á morgun, ekkert spennandi staður en vonandi frír bjór. Er allt í einu ekkert í neinu djammstuði, aldrei þessu vant. Spennandi verður að sjá hvernig líffræðinemar skemmta sér, er alveg búin að gleyma því. Veit ekki einu sinni hvaða skemmtistaðir eru inn hjá líffræðinörrum.

Hvað varðar skemmtistaði, þá er eitthvað svona þeigjandi samkomulag hjá mér og Ásdísi. Byrjum yfirleitt alltaf á hverfis, dillum okkur við píkutónlist og dúndrandi bassa. þar er Ásdís alveg í essinu sínu og smellir sér iðulega í einhvern Beyonce/Britney gír og hristir alla útlimi eins og hún eigi lífið að leysa. Óskynsamlegt magn er innbyrgt af píkudjús í flösku og tequilla lekur niður barma okkar. Því næst er yfirleitt haldið á 22, þar sem ég er í essinu mínu. Þar er slammað við rífandi gítarsóló, rappað í takt við svartamanninn og ef vel liggur á okkur, er tekið luftgitarsolo með hnjáslædi. Bjórinn er teigaður í lítravís, og tequillað slammað af mikilli áfergju, ekkert salt, engin sítróna.