Fanney keepin´t cool

mánudagur, janúar 26, 2004

Gvuð, hvað ég er orðin slöpp að blogga! Jæja en hér kemur smá öppdeit. Smellti mér á bjórkvöld líffræðinema á föstudaginn. Frekar fámennt, en góðmennt. Fannsan var látin taka þátt í bjórþambskeppni og gerði sér lítið fyrir og sigraði andstæðinga sína á mettíma. Mjög stolt kona, þar sem bjórdrykkja er mitt aðaláhugamál! Hitti svo Ásdísi(sem er líka slöpp að blogga) á samkomu einni....segi ekki hvar ;) Við stöllur tókum svo hressilega á því eins og vanalega, en þó ekki eins hressilega og sumir. Laugardagur og sunnudagur fóru í að lappa upp á nýju íbúðina mína, og verður þetta ein vænlegasta piparjónku-holan í Evrópu. Hlakka til að fara að draga grandalausa pilta þangað...*hósthóst*. Bjartsýni borgar sig.........